Við hjá Þakmálun.is sérhæfum okkur í viðgerðum og endurmálun á þökum og járnklæðningum. Við notum málningarkerfi sem hentar sérstaklega vel við íslenskar aðstæður — viðhald á 8–12 ára fresti.
Við fyrirbyggjum kostnaðarsamar framkvæmdir með réttu viðhaldi og vandaðri vinnu. Við skilum af okkur fagmannlega unnu verki sem og gætum hreinlætis þar sem við komum.
Við sérhæfum okkur í viðgerðum og málun þaka. Hvort sem um ræðir málun á nýju járni eða eldra járni sem þarfnast sérstakrar meðhöndlunar. Hjá okkur starfa einnig smiðir ef þörf er á þakskiptum eða viðgerðum á þaki og þakköntum.
Við bjóðum upp á alla spartl- og málningarvinnu innanhúss. Hvort sem um ræðir endurmálun eða nýmálun fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Einnig höfum við mikla reynslu í sandspörtlun, slípun, frágangi gipsveggja og málun nýbygginga.
Við bjóðum upp alhliða utanhússmálun ásamt múrviðgerðum og höfum unnið fyrir einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög og verkfræðistofur. Helstu verkliðir eru; háþrýstiþvottur, múrviðgerðir, endurmálun á stein og timbri.
Þakmálun.is getur annast verkefni í heild sinni, hvort sem um ræðir málningar-, smíða- eða múrþjónustu. Við erum í samstarfi við bæði smiði og múrara.
Sumarið 2021 tók Þakmálun að sér málun á nýju þaki Nýja Mjólkurbúsins á Selfossi.
Árið 2013 tók Þakmálun að sér í undirverktöku fyrir ÁS-Smíði að nýmála stein eftir múrviðgerðir og filtun. Verkefnið var stórt og tók um 3 ár.
Alhliða viðhald fyrir húsfélagið: háþrýstiþvætti, múrviðgerðir, viðgerðir á timbri ásamt endurmálun á stein og timbri á öllu húsinu.
Ryðviðgerðir á þakgluggum sem voru sprautuðumálaðir með þakinu. Einnig var allt tréverk á húsinu endurmálað.
Hjá Þakmálun.is starfa einstaklingar sem búa yfir áralangri og sérhæfðri reynslu á sviði þakviðgerða og þakmálunar. Við leggjum okkur fram við að bjóða upp á auðveld og þægileg samskipti.
Faglega og persónulega þjónusta
Gætum hreinlætis hvar sem við komum
Ánægðir viðskiptavinir
Er kominn tími á framkvæmdir? Sendu okkur fyrirspurn og við gerum þér tilboð, að kostnaðarlausu.